- fyrir Norðurlandsmótaröðina
1. gr.
Árlega eru haldin á Norðurlandi stigamót (mótaröð) í samráði við þá klúbba sem hýsa mótin. Mótin eru haldin
á golfvöllum á Norðurlandi.
2. gr.
Framkvæmd stigamótanna er í höndum hóps sem hefur umsjón með framkvæmd þeirra. Hópinn skipa aðilar sem valdir eru árlega.
Hópurinn útvegar dómara fyrir hvert mót.
3. gr.
Hópurinn ákveður þátttökugjöld og innheimtir þau í hverju móti fyrir sig. Ráðstöfun þátttökugjalds er í
höndum hópsins hverju sinni.
4. gr.
Þátttakendur skulu tilkynna um þátttöku á golf.is fyrir kl. 22:00 kvöldið fyrir mótsdag. Hópurinn getur þó heimilað
þátttöku, berist tilkynning síðar ef hámarksfjölda þátttakenda hefur ekki verið náð.
5. gr.
Hópurinn ákveður staðarreglur og jafnframt skal hann hafa eftirlit með merkingum vallar og holustaðsetningum og getur ákveðið breytingar. Þá
getur hópurinn ákveðið að fresta eða fella niður mót vegna veðurs.
6. gr.
Þátttökugjöld skulu greidd á mótsstað. Þátttökugjöld fást ekki endurgreidd.
7. gr.
Keppt er í þremur opnum flokkum og liðakeppni. Þátttökurétt í karlaflokkum hafa kylfingar sem hafa náð 10,4 í forgjöf, en í
kvennaflokki er miðað við forgjöf 15,4 og lægri. Hópurinn getur heimilað kylfingum með hærri forgjöf þátttöku, enda hafi
hámarksfjölda keppenda ekki verið náð. Atvinnumönnum er heimil þátttaka. Keppendur skulu vera meðlimir í viðurkenndum
golfklúbbi.
Hópurinn ákveður hámarksfjölda keppenda. Hafi fleiri skráð sig til leiks en hópurinn ákveður skulu þeir keppendur er hafa lægstu
forgjöf hafa forgang. Standi val milli keppenda með jafnháa forgjöf, skal hlutkesti ráða.
8. gr.
Hvert mót skal vera að lágmarki 18 holur. Mótin skal auglýsa með hæfilegum fyrirvara. Stefnt skal að því að keppendur geti spilað
keppnisvöll daginn fyrir keppnisdag.
9. gr.
Hópurinn ákveður rástíma og leikröð keppenda. Tilhögun skal kynnt ekki síðar en kvöldið fyrir keppnisdag.
10. gr.
Stig eru reiknuð út eins og fram kemur í viðauka. Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir, skiptast stig jafnmargra sæta jafnt milli þeirra keppenda.
Bráðabani skal hins vegar spilaður til að ákvarða verðlaunasæti, en úrslit bráðabana hafa ekki áhrif á stigafjölda keppenda
úr mótinu.
11. gr.
Stigameistarar eru þeir kylfingar sem eru efstir að samanlögðum stigum úr öllum mótum ársins. Ef tveir eru jafnir telst sá sigurvegari, sem efstur hefur
orðið í fleiri mótum og ef þeir eru enn jafnir þá sigrar sá sem hefur lægra heildarskor úr stigamótunum. Fáist ekki úrslit með
þessu móti ræður hlutkesti.
Viðauki: Stigalisti
| Sæti | Hlutfall | Stig |
| 1 | 10,00% | 1.000 |
| 2 | 8,25% | 825 |
| 3 | 7,25% | 725 |
| 4 | 6,75% | 675 |
| 5 | 6,50% | 650 |
| 6 | 6,25% | 625 |
| 7 | 6,00% | 600 |
| 8 | 5,75% | 575 |
| 9 | 5,50% | 550 |
| 10 | 5,25% | 525 |
| 11 | 4,75% | 475 |
| 12 | 4,25% | 425 |
| 13 | 3,75% | 375 |
| 14 | 3,25% | 325 |
| 15 | 2,75% | 275 |
| 16 | 2,50% | 250 |
| 17 | 2,25% | 225 |
| 18 | 2,00% | 200 |
| 19 | 1,75% | 175 |
| 20 | 1,50% | 150 |
| 21 | 1,25% | 125 |
| 22 | 1,00% | 100 |
| 23 | 0,75% | 75 |
| 24 | 0,50% | 50 |
| 25 | 0,25% | 25 |
| Samtals | 100,00% | 10.000 |




