Norðurlandsmótaröðin

Veldu gæði....veldu kjarnafæði;) Já, það orðið ljóst hver stigameistari mótaraðarinnar er..... Vegna hávaðroks um morguninn  var tekin sú akvörðun að færa

Deila á facebook

Veldu gæði....veldu kjarnafæði;)

Já, það orðið ljóst hver stigameistari mótaraðarinnar er.....

Vegna hávaðroks um morguninn  var tekin sú akvörðun að færa teigana fram og því spilað á rauðum teigum....nei við færðum þá reyndar bara fram á gulu teigana.  Samt sem áður var lítið um mjög lág skor í mótinu....reyndar ekkert....það er auðvitað margt sem hefur áhrif á spilamennsku manna í lokamóti sem þessu utan veðurs, spennan var gríðarleg og Haukur Dúdda þurfti á allri sinni reynslu að halda til þess að menn héldu sönsum á fyrsta teig.

Vindurinn var slíkur að menn voru að setja boltann á grínið á fyrstu holu með hálfvita....ég sá þetta með eigin augum þegar Tóti Páls skellti kvikindinu inná grínið....algerlega ótrúlegt!!!

Heiðar Davíð og Bjössi Þorgeirs voru efstir á stigalistanum fyrir mótið og ljóst að annar þeirra myndi landa sigri á mótaröðinni, Óli Gylfa og Fylkir voru líklegastir til þess landa þriðja sætinu en þar sem að Fylkir var upptekinn við að spila í kvennamótinu bleiki bikarinn þá var Óli nokkuð öruggur.

Heiðar og Bjössi háðu harða baráttu í mótinu og virtist Bjössi ætla að gera það gott þar sem hann var 1 undir pari eftir átta holur og Heiðar virtist vera að glutra þessu niður þegar hann var kominn 3 yfir par eftir 10 holur en hann náði að ljúka leik 3 yfir pari á meðan Bjössi gaf eftir og endaði 5 yfir pari.

Heiðar Davíð sigraði mótið og gulltryggði þannig stigameistaratitilinn, Bergur Rúnar og Jón Orri háðu mikla baráttu um annað sætið og þurfti shoot out til þess að útklja málið....farið var upp á 18 teig og Bergur tryggði sér þar annað sætið með því að klína boltann 8m frá pinna!!!

Verðlaunaafhending og matur var svo um kvöldið, eldað var dýrindiskjöt frá kjarnafæði sem Konni kokkur sá um að fullkomna og mótaröðin sá svo um að dreifa rauðvíni á borðin til þess að losa um málbeinið á fólkinu;)

Eins og áður hefur komið fram varð Heiðar stigameistari og fékk 40 þús kr úttekt hjá Hole in one og glæsilegan farandbikar fyrir.  Bjössi Þorgeirs varð í öðru sæti og fékk 30 þús kr úttekt.  Óli Gylfa varð þriðji og fékk 20 þús kr.

Fagnað var fram á nótt og nokkuð ljóst að þessi mótaröð kann að halda lokahóf;)

Kveðja, Óli Gylfa og Heiðar:)



Kjarnafæði logo

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf