Norðurlandsmótaröðin

Norðurlandsmótaröðin 2010 - tveir flokkar og liðakeppni Mótaröðin er að hefja sitt annað ár og er óhætt að segja að hún hafi heppnast vel síðasta sumar og

Deila á facebook

Norðurlandsmótaröðin 2010 - tveir flokkar og liðakeppni

Mótaröðin er að hefja sitt annað ár og er óhætt að segja að hún hafi heppnast vel síðasta sumar og stemmningin verið góð – þetta er bara gaman!  Í ár verða gerðar nokkrar breytingar, þar sem keppendum verður skipt í tvo flokka auk þess sem leikin verður liðakeppni í hverju móti.  Grillið í lok hvers móts og lokahófið eru að sjálfsögðu áfram á sínum stað.

Keppnisfyrirkomulag
: Leiknar eru 18 holur og keppendur skiptast í tvo flokka.  Forgjöf 5,4 og lægri spila á hvítum teigum (þar sem það á við), en 5,5 – 10,4  spila á gulum teigum.  Leikinn er höggleikur án forgjafar og eru verðlaun veitt fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki, auk verðlauna fyrir lengsta upphafshögg og næst holu á par 3 holum í hverju móti.

Liðakeppni: Fimm einstaklingar mynda lið.  Þrjú bestu skorin telja með forgjöf (punktakeppni).  Æskilegt er að menn komi sér saman og mynda lið og skrá það fyrir fyrsta mótið. Fulltrúar mótaraðarinnar reyna að aðstoða þá sem ekki eru í liði vilji þeir taka þátt í liðakeppninni.

Þáttökugjald er aðeins 2.000 kr sem er notað til verðlauna á mótaröðinni og til að efla hana á ýmsan hátt.  Það er grillað ofan í mannskapinn í hverju móti.

Lokahóf: Laugardagskvöldið 11. september verður lokahóf mótaraðarinnar haldið á Jaðri. Þar verða krýndir meistarar mótaraðarinnar og veitt verðlaun fyrir liðakeppnina. Grillað verður dýrindiskjöt frá Kjarnafæði ofan í mannskapinn og fagnað fram á nótt eins og venjulega!


Kjarnafæði logo

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf