Norðurlandsmótaröðin

Mót 3. 2010 Þá er þriðja mótinu lokið og fór það fram á Húsavík þann 3 júlí. Völlurinn var í topp standi og eiga Húsvíkingar hrós skilið fyrir flottann

Deila á facebook

Mót 3. 2010

Þá er þriðja mótinu lokið og fór það fram á Húsavík þann 3 júlí. Völlurinn var í topp standi og eiga Húsvíkingar hrós skilið fyrir flottann völl. Keppendur voru 28 að þessu sinni og greinilegt að sumir tóku veðurspána aðeins of alvarlega og þorðu ekki út úr húsi og fengu það aftur í hausinn því það var ekkert að veðrinu á Húsavík. Allir þeir sem mættu stóðu sig með prýði og eiga hrós skilið að hafa ekki látið veðurspána hræða sig en eins og alltaf þurftu einhverjir standa uppi sem sigurvegarar og voru úrslitin þessi:

1.fl

  1. Arnþór Hermannsson ( GH ) - 77 högg (+7)
  2. Þórir V. Þórisson ( GA ) - 82 högg (+12)
  3. Þórhallur Pállsson ( GA ) - 83 högg (+13)

Mfl.

  1. Sigurbjörn Þorgeirsson ( GÓ ) - 74 högg (+4)
  2. Friðrik Gunnarsson ( GA ) - 74 högg (+4)
  3. Ingvar Karl Hermannsson ( GA) - 74 högg (+4)

En Sigurbjörn var hlutskarpastur í bráðabana og stóð því réttilega uppi sem sigurvegari.

Liðakeppnin var líka á sínum stað og voru það heimamennirnir sem stóðu uppi sem sigurvegarar með 93 punkta en lið þeirra heitir Víkingarnir.

Næsta mót fer fram á Sauðárkrók þann 22 ágúst og nú hafa menn nægann tíma til þess að æfa fram af því móti og vonast ég til þess að ALLIR!! sjái sér fært um að mætta því það kemur til með vera ákaflega skemmtilegt mót og þó að veðurspáin verði kanski ekki góð þá klæðum við okkur bara betur fyrir vikið ;)

kv. Frikki



Kjarnafæði logo

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf