Norðurlandsmótaröðin

Lokamótið á mótaröðinni í ár. Þá er komið að síðasta mótinu á mótaröðinni og spennan er gríðarleg.  Leikinn verður höggleikur án forgjafar eins og

Deila á facebook

Lokamótið á mótaröðinni í ár.

Þá er komið að síðasta mótinu á mótaröðinni og spennan er gríðarleg.  Leikinn verður höggleikur án forgjafar eins og venjulega en einnig verður bætt við liðakeppni. Mótsgjald er 1500 kr. Verðlaun eru veitt fyrir efstu 3 sætin, nándarverðlaun, lengsta dræf og liðakeppnina.

Liðakeppni: Hvert lið samanstendur af 3 leikmönnum.  Valið í liðin fer þannig fram að menn eru settir í styrkleikaflokka eftir forgjöf og flokkarnir eru 3 talsins.  Svo er valið 1 leikmann úr hverjum flokki og myndað lið, svona ættum við að ná nokkuð jöfnum liðum.  Besta heildarskor kemur til með að sigra.

Verðlaunaafhending: Veitt verða verðlaun fyrir mótið á lokahófinu um kvöldið og krýndur verður stigameistari.

Lokahóf: Haldið verður lokahóf mótaraðarinnar um kvöldið og hefst kl.20 með mat.  Á boðstólum verður dýrindiskjöt frá kjarnafæði og meðlæti, drykkir koma til með að fást í veitingasölu klúbbsins.

Verðskrá lokahófsins: Þeir sem hafa sótt 3 mót eða fleiri koma ekki til með að greiða neitt fyrir matinn. Þeir sem sótt hafa 2 mót koma til með að greiða 1000 kr. Þeir sem sótt hafa 1 mót greiða 2000 kr. Makar eru velkomnir og greiða þarf 2000 kr. fyrir þá.

DJ golf kemur til með að halda uppi dampi þegar líða tekur á kvöldið en ekki er enn búið að finna út hver á að vera veislustjóri....þetta er í nefnd!!! 

Sjáumst á stærsta golfviðburði ársins;)



Kjarnafæði logo

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf