Almennt - þriðjudagur 07.september 2010 - Norðurlandsmótaröðin - Lestrar 98 - Athugasemdir (0)
Í brakandi blíðu var sett vallarmet á Lundsvelli þar sem Heiðar Davíð lék 5 undir pari með 6 fugla og einn skolla og gulltryggði
sér stigameistaratitilinn í meistaraflokki annað árið í röð þrátt fyrir að eitt mót sé eftir. Baráttan um
annað og þriðja sæti er samt hörð þar sem Fylkir og Óli gylfa eru búnir að koma sér fyrir en Örvar og Frikki settu upp á bak
í síðasta móti og eru rétt á eftir.
Í fyrsta flokki sigraði Júlíus Tryggvason eftir shoot out við Björn Auðunn. Staðan þar hefur breyst og er Björn Auðunn efstur en Björn Már og Gústaf Adolf fylgja honum eins og skugginn....það verður því svakaleg barátta á laugardaginn.
Næstum því liðið er komið í góða forystu í liðakeppninni og Dúdarnir sem voru í efsta sæti settu allverulega á bakið á sér og eru núna í fjórða sæti!!!
Sjáumst á laugardaginn á Jaðri;)