Norðurlandsmótaröðin

Lokamótið og stigameistarar krýndir Fimmta og síðasta mótið á mótaröðinni fór fram á Jaðri, Akureyri. Birgir Haraldsson sigraði í meistaraflokki á 1 yfir

Deila á facebook

Lokamótið og stigameistarar krýndir

Fimmta og síðasta mótið á mótaröðinni fór fram á Jaðri, Akureyri.

Birgir Haraldsson sigraði í meistaraflokki á 1 yfir pari eftir rugl bráðabana(við erum að tala um millimetra) en Sigurður Ingvi og Sigurbjörn Þorgeirsson léku einnig 1 yfir pari. Sigurbjörn varð í öðru og Sigurður í þriðja.

Í fyrsta flokki sigraði Sverrir Þorvaldsson eftir bráðabana við Björn og Jón Gunnar. Björn Auðunn varð í öðru sæti og Jón Gunnar í þriðja.

Næstum því liðið sigraði í liðakeppninni rétt eins og þeir gerðu í Lundi.

Veður var ágætt fyrir keppendur og völlurinn í flottu standi.  40 keppendur voru skráðir til leiks í mótinu.  Veitt voru verðlaun fyrir mótið og stigameistarar krýndir í  lokahófi um kvöldið þar sem dýrindis kjöt frá Kjarnafæði var matreitt ofan í mannskapinn af Konna kokki.

Stigameistari í meistaraflokki er Heiðar Davíð annað árið í röð en hann sigraði þetta nokkuð örugglega með rúm 1000 stig á næsta mann. Fylkir Þór náði öðru sætinu og Ólafur Gylfason því þriðja.

Björn Auðunn Ólafsson sigraði fyrsta flokkinn, Gústaf Adolf varð í öðru sæti og Kristmann Þór í því þriðja.

Liðakeppnina í ár sigraði Næstum því liðið og hlaut hver liðsmaður gjafabréf frá Ecco upp á eitt par af golfskóm í verðlaun.

Stigameistarar og þeir sem enduðu í verðlaunasætum á stigalistanum hlutu gjafabréf frá Hole in one að heildarverðmæti 150.000.kr.

Við viljum þakka styrktaraðilum mótaraðarinnar; Kjarnafæði, Hole in one og Ecco fyrir frábæran stuðning. Einnig viljum við þakka þeim golfklúbbum sem mótin voru haldin á fyrir aðstoðina við þetta allt saman.

Þetta er búið að vera skemmtilegt golfsumar hér fyrir norðan og munu fulltrúar mótaraðarinnar leggjast undir feld í vetur og huga að því hvernig hægt sé að gera mótaröðina fjölmennari og sterkari á komandi ári. Við viljum þakka öllum keppendum sem mættu í sumar og hlökkum til þess að sjá ykkur alla á næsta ári.

Fylgist með á næstunni….orð götunnar er það að menn séu nú þegar farnir að huga að næsta sumri!!!

Kveðja, Norðlenska mótaröðin;)



Kjarnafæði logo

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf