Ákveðið hefur verið að halda fjórða mótið á Lundsvelli þann 5.sept. Sem er næsta sunnudag....takið daginn frá....það er mjög líklegt að vallarmet verði sett í þessu móti að sögn Óla Gylfa sem hefur farið hamförum að undanförnu á golfvellinum og vilja velunnarar mótaraðarinnar óska honum til hamingju með holu í höggi um daginn á 4 holu Jaðarsvallar. Hann hefur núna einsett sér að fara holu í höggi á Lundsvellinum á sunnudaginn.
Slúðrið á götunni; Bergur Rúnar var 6 undir pari í móti um síðustu helgi og er því sjóðandi heitur....fylgdi því svo eftir með 100+ á Húsavíkurvelli daginn eftir sem að sögn var óheppni!!! Einnig var Heiðar Davíð 5 undir í afmælismóti GÓs á Blönduósi....með 4 bogey á kortinu. Það er greinilegt að menn eru að hitna fyrir Norðan og hitastigið líka....það má því búast við rosalegu móti á sunnudaginn:)
Að sjálfsögðu verða glæsilega verðlaun eins og alltaf í mótunum okkar og grillað dýrindis pulsur;)
Skráning fer fram á golf.is




