Mæting í þetta mót var í lakara lagi en 19 létu sjá sig og vorum við ótrúlega heppnir með veður þó svo að heimamenn hafi haldið því fram að þetta sé alltaf svona....það var nefnilega bongóblíða á okkur allan daginn;) Völlurinn var góður og þökkum við kærlega fyrir afnotin en hann er alls ekki auðveldur af öftustu teigum....leikið var af hvítum teigum og lengdust 1,2,3 og 9 holan nokkuð við það. Völlurinn er nokkuð erfiður af teig og hvet ég alla sem vilja fá áskorun til þess að prófa þennan völl af öftustu teigum.
Veitt voru nándarverðlaun í boði golfverslunarinnar Hole in one á par 3 holum(3 og 6) og lengsta dræf var mælt á 9 holu. Nándarverðlaun hlutu Brynjar Örn Guðmundsson og Sigurbjörn Þorgeirsson, settu báðir í gefið takk!!! Lengsta dræf(eina dræfið sem hitti braut) sló Ingvar Karl Hermannsson:)
Í þriðja sæti á 78 höggum var Birgir Haraldsson og jafnir í fyrsta sæti voru Heiðar Davíð og Ólafur Gylfason. Farið var í bráðabana sem tekin var af 108m færi á 9 holu, sá sem myndi setja nær yrði sigurvegari. Heiðar byrjaði og setti 1,5m frá með léttum PW og Óli ætlaði varla að trúa því hve gott högg þetta var....fékk bakspuna og alles...Óli reif upp 8 járnið sitt(farinn að eldast) og klíndi kvikindið 3 fet frá, fagnaði ógurlega og tók fistpumpið sitt fræga....nánast lygilegt högg;) Óli var því verðugur sigurvegari mótsins og óskum við honum til hamingju með það.
Eftir þessa dramatík var að sjálfsögðu grillað ofan í mannskapinn pylsur frá Kjarnafæði og veitt verðlaun.
Þetta var 3 mótið af 4 á mótaröðinni og sigurvegararnir eru 3 úr þessum mótum, spennan ætti því að vera rosaleg í lokamótinu sem haldið verður á Akureyri þar sem Ólafur telst nokkuð sigurstranglegur á heimavelli og með mómentið með sér.
Búið er að uppfæra stigalistann og bæta við myndum úr mótinu.
Nánari upplýsingar um lokamótið og hófið sem verður í kjölfarið munu koma hér á síðuna innan tíðar.
Heiðar Davíð




