Norðurlandsmótaröðin

2. mótið á Húsavík - úrslit og stigalisti Annað mótið á mótaröðinni fór fram á Húsavík þann 20.júní. Því miður eru engar myndir til af mótinu þar sem

Deila á facebook

2. mótið á Húsavík - úrslit og stigalisti

Annað mótið á mótaröðinni fór fram á Húsavík þann 20.júní. Því miður eru engar myndir til af mótinu þar sem forráðamenn mótaraðarinnar gleymdu myndavél....það mun ekki gerast aftur!

Skorið í mótinu var í hærra lagi þetta skiptið og voru aðstæður leikmönnum nokkuð erfiðar til að byrja með vegna vinds og á tímabili var afar erfitt að sjá hver vindáttin á vellinum var þar sem flöggin á vellinum virtust öll snúa í sitthvora áttina. Þegar leið á seinni 9 holurnar tók að lægja og síðustu holurnar spiluðu menn í bongóblíðu.  Sigurvegari mótsins var Heiðar Davíð á 73 höggum, Sigurbjörn Þorgeirsson í öðru sæti á 77 höggum og Fylkir Þór Guðmundsson í þriðja sæti á 78 höggum eins og Örvar Samúelsson en vegna þess að Örvar var farinn af svæðinu dæmdist Fylkir í þriðja sæti.  Nánari úrslit má sjá á golf.is.

Staðan á stigalistanum er sú að Sigurbjörn heldur efsta sætinu, Heiðar í öðru sæti og Fylkir í þriðja sæti.

Að sjálfsögðu var grillað ofan í mannskapinn pylsur frá kjarnafæði eftir hringinn til þess að létta mönnum lund eftir erfiðan dag á vellinum. Mótahaldið tókst í alla staði vel og viljum við færa Golfklúbbi Húsavíkur þakkir fyrir aðstoðina við mótahaldið og fyrir afnot af vellinum.


Kjarnafæði logo

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf