Annað mótið í Norðurlandsmótaröðinni er yfirstaðið og fór það fram á Dalvík þann 20 júní. Keppendur mættu sprækir til leiks og létu það ekki hafa áhrif á sig þó það væri talsverður vindur enda var völlurinn vel á sig kominn og ekki skemmir fyrir hvað hann er skemmtilegur. Það var örlítið slakari mætting á þetta mót heldur en á Akureyri en samt sem áður var fjöldi keppenda sem háðu harða baráttu og voru skorin hjá kylfingum almennt betri heldur en í fyrsta mótinu. Þó allir hafi staðið sig með prýði þarf alltaf að vera sigurvegari og voru þessir hlutskarpastir:
Mfl.
- Heiðar Davíð Bragason ( GHD ) - 67högg (-5)
- Örvar Samúelsson ( GA ) - 70högg (-2)
- Ólafur Auðunn Gylfason ( GA ) - 71högg (-1)
1.fl.
- Gústaf Adolf Þórarinsson ( GHD ) - 80högg (+8)
- Einar Gestur Jónasson ( GH ) - 83högg (+11)
- Arnþór Hermannsson ( GH ) - 85högg (+13)
Liðakeppnin var einnig á sínum stað og voru það "Dude where's my par sem unnu með 112 punkta.
Næsta mót verður haldið á Húsavík þann 3. júlí næstkomandi og vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta því ég get lofað því það verður góður stemmari og ennþá harðari keppni á næsta móti.
P.S. strákar við megum nú ekki láta Heiðar vinna öll mótin svo það þurfa vera stífar æfingar fyrir næsta mót!:D
kv. Frikki




