Leikinn er höggleikur án forgjafar í hverju móti í þremur flokkum.
Karlaflokkarnir eru tveir, 5,4 og lægra í forgjöf spila á hvítum teigum (þar sem það á við, annars gulum), þeir sem eru með 5,5 – 10,4 í forgjöf spila á gulum teigum.
Kvennaflokkurinn miðast við 15,4 og lægra í forgjöf og spilað er af bláum teigum (þar sem það á við, annars rauðum).
Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin í öllum flokkum, auk verðlauna fyrir lengsta upphafshögg og næst holu á par 3 holum.
Skráning í mótin fer fram á golf.is
Liðakeppni fer fram í hverju móti, þar sem fimm einstaklingar mynda hvert lið og þrjú bestu skorin með forgjöf
telja (punktakeppni). Æskilegt er að menn myndi sjálfir lið og skrái það fyrir fyrsta mótið. Hægt er að skrá liðið
sitt hér að ofan undir flokknum Liðakeppni.
Þáttökugjald er aðeins 2.000 kr, grillmatur í mótslok innifalinn.




