Norðurlandsmótaröðin er fyrir alla kylfinga með 10,4 og minna í forgjöf. Leikið er á fimm völlum á Norðurlandi.
Nákvæm tíma- og staðsetning mótanna er að finna í dagatalinu hér til hliðar.
Leikinn er 18 holu höggleikur án forgjafar í hverju móti og keppendur skiptast í tvo flokka. Forgjöf 5,4 og lægri spila á hvítum teigum
(þar sem það á við), en 5,5 – 10,4 spila á gulum teigum. Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki,
auk verðlauna fyrir lengsta upphafshögg og næst holu á par 3 holum. Skráning í mótin fer fram á golf.is
Einnig er leikin liðakeppni í hverju móti, þar sem fimm einstaklingar mynda hvert lið og þrjú bestu skorin með forgjöf
telja (punktakeppni). Æskilegt er að menn myndi sjálfir lið og skrái það fyrir fyrsta mótið, en fulltrúar mótaraðarinnar
reyna að aðstoða þá sem ekki eru í liði vilji þeir taka þátt í liðakeppninni. Hægt er að skrá liðið sitt
hér að ofan undir flokknum Liðakeppni.
Þáttökugjald er aðeins 2.000 kr, grillmatur í mótslok innifalinn.
Flýtilyklar
Norðurlandsmótaröðin í golfi
Fréttir
Gott skor á Lundsvelli og breytingar á stigalistum
Almennt - þriðjudagur 07.september 2010 - Norðurlandsmótaröðin - Lestrar 14 - Athugasemdir (0)
Í brakandi blíðu var sett vallarmet á Lundsvelli þar sem Heiðar Davíð lék 5 undir pari með 6 fugla og einn skolla og gulltryggði
sér stigameistaratitilinn í meistaraflokki annað árið í röð þrátt fyrir að eitt mót sé eftir. Baráttan um
annað og þriðja sæti er samt hörð þar sem Fylkir og Óli gylfa eru búnir að koma sér fyrir en Örvar og Frikki settu upp á bak
í síðasta móti og eru rétt á eftir.
Lesa meira
Lesa meira
4. mótið verður leikið á Lundsvelli
Almennt - sunnudagur 05.september 2010 - Norðurlandsmótaröðin - Lestrar 32 - Athugasemdir (0)
Ákveðið hefur verið að halda fjórða mótið á Lundsvelli þann 5.sept. Sem er næsta sunnudag....takið daginn frá....það er mjög líklegt að vallarmet verði sett í þessu móti að sögn Óla Gylfa sem hefur farið hamförum að undanförnu á golfvellinum og vilja velunnarar mótaraðarinnar óska honum til hamingju með holu í höggi um daginn á 4 holu Jaðarsvallar. Hann hefur núna einsett sér að fara holu í höggi á Lundsvellinum á sunnudaginn.
Lesa meiraÁ næstunni
11.09.2010
Leit
Könnun
Engin könnun skráð




